Kolla

Já!!!! Góðan daginn!!!

16.08.2008 00:19:44 / kolbrún

Brjálað að gera!;)

Já brjálað að gera síðustu daga... sem er bara gott;)
Fiskidagshelgin tókst svona svakalega vel... skemmti mér alveg konunglega;) en ætli Elsa mín hafi ekki toppað helgina hahahahah..... úffff.... rosalegt... held ég hafi bara aldrei hlegið svona mikið;)))

Var að koma heim... ég og Bryndís mín skelltum okkur á Strikið og átum pínu yfir okkur hehe... skelltum okkur svo á rúntinn þar sem ég keyrði næstum á bíl sem ég sá ekki og svo tók ekki betra við þegar ég keyrði næstum á eitthvað fólk sem var allt í einu á miðri götu hahahahaha.....kallinn átti fótum sínum fjör að launa og SPRETTAÐI af götunni.... úfffff.... þreytan greinilega farin að segja til sín hehe.... Svo kíktum við á Kaffi ak og vorum alveg að deyja úr kulda þannig að ég ákvað að hækka svona hressilega á ofninum til að hita okkur.... svo vorum við bara eitthvað að skoða bækling með utanlandsferðum.... alllt í einu sagði Bryndís "hvaða brunalykt er hérna inni" ég bara "shit! ég er örugglega að kveikja í með að hækka svona mikið í ofninum" og snarlækkaði aftur.... en ekki fór lyktin... magnaðist bara upp!! hahahha allt í einu fattaði Bryndís að hún hafði lagt útlandabæklinginn ofan á kertið á borðinu hahahha og kveikti næstum í staðnum hahhahahah... snilld!! Erum smátt búnar að hlægja í kvöld!!!

En er að hugsa um að fara að leggja mig... þarf að keyra í Vatnsdalinn í fyrramáli.... verð þar fram á mið.kvöld sem er bara fínt.... hlakka til að fara að vinna með Önnu minni;)
Svo er ég nú bara að hugsa um að skella mér suður næstu helgi til Elsu minnar... stelpunum á stofunni líst ekkert á að ég taki mér aldrei frí þannig að þær skipuðu mér að taka mér frí mánudag og þriðjudag heheh.... svona er að finnast gaman í vinnunni....;);) Þannig að Kollan er að fara skella sér í borgina á Menningarnótt og ætlar að sletta ærlega úr klaufunum heheh

En já haldiði að ég sé ekki bara búin að læra Braselískt vax heheh.... hver þorir að koma!! Byrjaði í dag... frænka stóð sig eins og hetja...að leyfa mér að prófa þetta á sér ;) En gekk bara rosavel;)

Annars bið ég nú bara að heilsa ykkur og hafið það rosagott


» 22 hafa sagt sína skoðun

01.08.2008 23:50:31 / kolbrún

Komin í Vatnsdalinn;)

Jæja þá er ég komin í langt helgarfrí á snyrtistofunni en ákvað að fara í Vatnsdalinn að vinna með Önnu minni frekar en að detta íða um Versló hehe skynsöm haaa.... neinei ætla að spara mig fyrir Fiskidaginn..... er orðin litl spennta... vonandi verður svona gott veður eins og búið er að vera!!!

Það er reyndar búið að vera aðeins of heitt... sérstaklega þegar maður þarf að vinna inni allan daginn í steikjandi hita... úfff hélt ég myndi deyja...

Ég og Anna vorum nú ekkert sáttar þegar við mættum í sveitina.... ÞOKA og nú er byrjað að rigna.... djöööö....

En vildi bara aðeins tjá mig hérna...;))) Hafið það bara gott!!
Eru ekki allir spenntir fyrir Fiskideginum?;)


» 7 hafa sagt sína skoðun

27.07.2008 20:39:00 / kolbrún

Hef ekkert að gera....

Er þá ekki bara málið að henda inn smá færslu hehe ;)
Hélt lítið afmælispartý í gærkvöldi....rosalega gaman... Kata náttlega bara klikkuð með þessa afmælisgjöf sína.... Flugmiði til bííííp.... 10 sept.... má víst enginn vita hvert heheh;)
En já þvílíka stemmingin í partýinu... sungum og sungum og Einar að missa sig á gítarnum;)
Og ekki var minni stemmingin þegar ég fór út á eftir... samferða pabba, einari og ingu... með drykki í melónum hahaha hvítvín í annari og bollu í hinni;) Gerðist margt fyndið hahahahaha.....

En já annars er bara mjög fínt að frétta af mér.... klikkað að gera í vinnunni hjá mér.... sem er náttlega bara gott!! Svo er ég að fara til Önnu minnar í Vatnsdalinn að vinna um næstu helgi!! Hlakka bara til;)
Þannig að allt er bara frábært þessa dagana....
Eina að við Kata erum ekki enn búnar að finna íbúð... erum senst að fara að leigja saman í sept... Hlakka rosalega til!! Alltaf gaman hjá okkur!
Jæja.... ætla að fara að gera eitthvað!! Búin að vera svo löt í dag ;))
Endilega kommentið... það er að segja ef einhver skoðar þetta blogg ennþá heheh
Mjög stutt síðan ég bloggaði síðast heheh




» 20 hafa sagt sína skoðun

01.05.2008 13:54:37 / kolbrún

Jahá!

Verður maður ekki að skell nokkrum línum hérna inn svo allir verði rólegir!! hehe

Ég fór semsagt til Jamaica í Febrúar og þetta var algjör DRAUMUR alveg ákveðin í að fara þangað aftur;)
Gerðum svo rosalega mikið... nenntum ekki bara að hanga í sundlaugargarðinum í sólbaði!
Við fórum að synda með höfrungum og OMG þetta var bara geðveikt, vorum samt pínu smeikar á tímabili en þetta var æði... ótrúlega gæfir þessir höfrungar....
Svo var það náttlega Bob Marley safnið! Sáum hvar goðið ólst upp að 13 ára aldri. Algjör snilld!
Fórum líka á hestbak og hestarnir syntu með okkur í Karabíska hafinu hehe;))
Gerðum svo margt margt meira en þetta stóð svona upp úr! Algjörlega FRÁBÆR ferð og geðveikt hótel!

En annars er nú bara ótrúlega fínt að frétta af mér! Var að koma úr ræktinni....;) ótrúlega dugleg!

Er nú samt bara að hugsa að nota daginn í leti fyrst það er frí í dag...

Jæja veit ekki hvað skal segja meir...
þannig að ég held að þetta sé bara komið í bili!
Þangað til næst!!
Kollan


» 6 hafa sagt sína skoðun

11.02.2008 23:21:48 / kolbrún

Allt að gerast!

Jæja styttist óðum í Jamaica... alveg að deyja úr spenningi!!

Allt rosagott að frétta af mér;)

Bauð Bryndísi minni í mat á lau... eldaði kjúkling handa okkur mmm.... borðuðum aðeins yfir okkur hehe... fórum svo bara taka okkur til á djammið og kíktum svo út.... skemmtum okkur bara vel eins og alltaf... Hitti Söru mína á djamminu... hitti hana alltof sjaldan enda alltaf ótrúleg fagnaðarlæti þegar við rekumst á hvor aðra... hehe

Annars er ég bara ennþá að deyja úr seddu eftir greifaferðina áðan;)  Ég og Dísa mín kíktum á greifann og átum yfir okkur af geðveikum kjúkling... alltaf gaman að hitta hana og spjalla;)

Sjá mig!!!! Tala bara um mat.... eins og ég hafi gott af því að éta svona mikið þegar ég er að fara til Jamaica hehehe;)

 Vildi bara aðeins láta vita af mér.... blogga örugglega ekkert fyrr en ég kem heim aftur frá Jamaica.... hafið það bara gott í kuldanum á meðan ég fer að synda með höfrungum, ligg á ströndinni og djamma af mér rassgatið hehe ...

Kveðja

Kolla Jamaicafari!! 


» 18 hafa sagt sína skoðun

29.01.2008 21:41:23 / kolbrún

Þreytt á kjaftasögum!!!!

Verð ég ekki að hlýða Elsu minni og blogga.... ;) Veit nú samt ekkert hvað ég á að segja ykkur...

 

Það er nú alveg að koma að Jamaicaferðinni.... gellurnar alveg að missa sig úr spenningi... þó sérstaklega ég! 16 dagar í ferðina.... þetta verður rosalegt....

 

Annars er nú bara allt flott að frétta af mér!

Er reyndar búin að vera að pæla í þessum agalegu kjaftasögum sem eru í gangi á Dalvíkinni þessa dagana... ætli þær tengist ekki flestar einhverjum úr fjölskyldu minni! Þvílíkt og annað eins rugl... að fólk nennir að standa í svona kjaftagangi... vita ekkert um málið og bera út þvílíkt rugl og vita ekki hvað það særir þá sem málið snýst um.... vita bara eina hlið á málinu og vita ekki einu sinni hvort hún sé sönn!! Þetta er búið að fara agalega í taugarnar á mér... var á tímabili að hugsa að labba upp að þessu fólki, sem ég veit að var að bera þessar fáránlegu sögur út , og rífa mig eitthvað eeennn.... nenni ekki að standa í því.... Fólk má alveg eiga sér ekkert líf og halda áfram að kjafta.... ég veit hvað er satt og fjölskyldan veit hvað er satt... skiptir mig ekki máli hvað aðrir halda.... þeir mega bara eiga sig....

En munið bara að trúa ekki öllu sem þið heyrið... algjört bull þessar sögur!

Ein voða pirruð... varð bara að koma þessu frá mér... og ætla að hætta að pæla í þessu....

 

Ætla bara að hugsa um JAMAICA núna úffff...... trúi ekki að það sé að koma að þessu!!

En hafið það rosalega gott!!


» 11 hafa sagt sína skoðun

08.01.2008 23:00:53 / kolbrún

Kolla komin í djammstuð

http://youtube.com/watch?v=9xiJ7poKmxQ

 

Hverjir vilja koma með mér á þetta í sumar!! Kíkið á þetta!!!! Og segið mér hvað ykkur finnst! 


» 13 hafa sagt sína skoðun

05.01.2008 18:23:24 / kolbrún

GLEÐILEGT NÝTT ÁR!

Vildi bara óska ykkur gleðilegs nýs árs!! (hmmm skrifar maður þetta ekki svona haha..)  Og vil bara þakka ykkur fyrir allt gamalt og gott.... Vonandi eigið þið gott ár framundan!! Allavega ætla ég að hafa þetta besta ár ævi minnar!!!! Styttist í Jamaica með Írisinni, það verður pottþétt ógleymanleg ferð....!!

Svo er ég og Herdís búnar að plana DJAMMSUMARIÐ MIKLA.... nú verður sko ferðast frá einum bæ til annars, gist í tjaldi eða hóteli og tekið ærlegt djamm á hinum ólíklegustu stöðum.... get ekki beðið eftir því... allir velkomnir með.... orðin leið á að djamma bara á Dalvík, Ak eða Rvk;)

Allavega er ég orðin eitthvað agalega bjartsýn og ánægð með lífið;)

 

Vildi bara aðeins láta vita af mér....

Endilega kommentið!

KVeðja Kollan  í bjartsýniskasti;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.12.2007 00:10:22 / kolbrún

Halló halló!

Hvað segiði?? Eruði komin í jólaskap??? Trúi ekki að það sé bara vika í jólin! Er ekki komin í mikið jólaskap.... ekkert jólalegt úti! Enginn snjór:( Vona að það gerist kraftaverk og það verði hvít jól... finnst ekkert spennandi að hafa rauð jól!

 

En til hamingju með afmælið Herdís mín!!!! Haldiði að hún sé ekki orðin 24 ára haha.... nú geturu ekki montað þig með að vera bara 23 en ég 24 hehe....

 

EN já annars alveg klikkað að gera í vinnunni.... er að vinna til 8 annað kvöld og ætli ég sé ekki að vinna lengur þessa síðustu daga fyrir jól... úfff.... en þetta er samt gaman... allir í góðu skapi... svo fær maður slatta útborgað þannig að þá ætti maður að fara að geta borgað Jamaica ferðina!!!! Úúúffffff ...... get ekki beðið eftir þessari ferð!

 

Ætli maður ætti ekki að fara að drífa sig í háttinn... langur dagur framundan;)

 

Hafið það bara gott... allavega ætla ég að hafa það gott!! 


» 8 hafa sagt sína skoðun

04.12.2007 14:18:46 / kolbrún

Veik heima!

Fór ekki í vinnuna í morgunn... með einhvern agalegan hósta og get vara talað.... Þoli ekki að vera veik!:evil: En ég er með smá félagsskap hérna hjá mér ;) Dimma verður hjá mér í dag því pabbi þarf að brasa hér á ak í dag... fínt að hafa hana hérna...

 Er ekki búin að hafa neitt að gera... bara ligg upp í rúmmi og fikta á netinu.. Fann snilldar síðu... fyrir þá sem hafa ekkert að gera hehe...

http://www.free-tv-video-online.info

Kíkð á þetta, fullt af sjónvarpsþáttum og bíómyndum, meira að segja myndir sem eru í bíói núna ;)

Hei haldiði að ég hafi ekki verið að pakka inn jólagjöfunum í gærkvöldi... bara snemma í því í ár... nenni ekki að vera á síðustu stundu með allt því ég verð að vinna svo mikið fyrir jól;)

 

 

Amma Alla hefði orðið 73 ára í dag! Til hamingju með það amma mín, ætli þú sért ekki með einhverja agalega matarveislu þarna hinumegin ;)

 

Endilega verið dugleg að kommenta... bara allir sem kíkja hingað inn, hvort sem ég þekki ykkur eða ekki;) hef ekkert að gera;)

 


» 14 hafa sagt sína skoðun

02.12.2007 21:38:54 / kolbrún

Róleg helgi!

Já tók því bara svona nokkuð rólega um helgina..... Var að lita og plokka nokkrar hjá Freyju mömmu Kötu á föskvöldið, Kata var bara flott á því og bakaði örugglega 5 eða 6 pizzur.... En mmmmmm...... þvílík snilld.... Kata mæli með að þú og pabbi þinn opnið bara pizzastað.....

En já fór svo fram á Klængshól um kvöldið..... ætlaði bara að vera þar fram á næsta dag því ég var að hugsa að kíkja á djammið með Herdísi minni..... Eeeennnnn ég fór að hjálpa pabba að setja upp útiseríuna á húsið, hélt að þetta tæki svona mesta lagi klukkutíma!!! Neinei.... þetta tók næstum 4 klukkutíma..... var að verða geðveik.... frjósa úr kulda.... hélt ég myndi bara deyja sko.....og ekki bætti það að ég var fyrir að drepast úr kvefi!

Svo þegar við komum inn bjó ég til heitt súkkulaði handa okkur.... svo var ég bara að drepast... lagðist bara fyrir... þannig að ég fór ekkert á djammið (kannski ágætt að taka sér smá pásu hehe) En já svo vaknaði ég í morgunn með mitt skemmtilega kvef og búinn að bætast við einhver agalegur hósti..... lá bara fyrir í dag.... þanga til pabbi skutlaði mér niðrá dalvík!

Skemmtileg saga hahaha......

 Vona bara að ég verði orðin í lagi í fyrramáli, tími ekki að sleppa úr vinnu hehe....

 

Jæja ákvað bara að deila þessu með ykkur!

Var þetta ekki ótrúlega upplífgandi færsla? hahaha 

Farið vel með ykkur!

Kveðja Kollan 


» 4 hafa sagt sína skoðun

26.11.2007 21:13:02 / kolbrún

Loksins komin með netið!!

Jæja þá er ég loksins komin með netið!!! Kannski bara búin að bíða eftir því síðan í lok ágúst!! Og þið vitið hvað ég er alltaf ÓTRÚLEGA heppin..... ég var kannski bara búin að vera með netið í hálfan dag þegar ég náði mér í VÍRUS og tölvan varð alveg snar geðveik og ég þurfti að senda hana í netið.... mér er greinilega ekki ætlað að vera með netið!!!! En ég plataði pabba til að lána mér tölvuna sína heheh.....

 

En já annars er bara allt flott að frétta af mér.... nú fer allt að verða crazy í vinnunni! Sýnist ég þurfa að vera í vinnunni allan sólahringinn í desember heheh... þannig að ef þið eigið eftir að panta tíma farið þá að drífa í því;) efast um ég verði eitthvað á dalvik að vinna þvi ég þarf að vinna svo mikið  á ak!

En já allt flott að frétta af mér.... Danski kúrinn virkaði svona ansk.... vel, missti 8 og 1/2 kg og nú er ég bara að byrja á fullu í ræktinni... magnað.....  

Búin að vera ansi dugleg í djamminu upp á síðkastið, þarf kannski aðeins að fara að draga úr því heheh......

 

En já segi þetta gott í bili;)

Enda þetta á einum brandara sem ég las í dag hahahaha.....

Hvernig veit maður að ljóskan hafi á slæman dag????

Hún er með túrtappa á bak við eyrað og er að leita af blýantnum sínum!

hahahahahahah  


» 11 hafa sagt sína skoðun

08.10.2007 17:23:55 / kolbrún

Jæja tími til kominn að blogga!

Já vá ekki búin að skrifa neitt síðan 17. júlí!!!

Allt frábært að frétta af mér! Er búin að vera að taka sjálfa mig algjörlega í gegn! Er bara mikið búin að vera að hugsa um hvað ég vil fá út úr lífinu, hafði nú ekki mikið annað að gera fyrst að Anna mín er ekkert búin að vera heima! En vá hvað ég þurfti á þessu að halda, var farið að líða eitthvað svo illa og vissi ekkert afhverju og sjálfsálitið aldrei verið eins lítið!!!  En já líður bara ótrúlega vel! Elska þessa vinnu sem ég er í, er svo ótrúlega heppin að vera boðin vinna hjá Guðnýju og Auju. Hef aldrei verið í vinnu þar sem ég get varla beðið eftir að komast í ;) Og glöð með að vera komin með svona marga fastakúnna og ennþá glaðari með hvað margir koma til mín frá Dalvík eftir að ég hætti að vera í ráðhúsinu ;))

En já er svo líka komin í átak, tók mataræðið í gegn og er strax búin að missa 4 1/2 kg á 6 vikum;) glöð með það! svo er ég og Anna byrjaðar á fullu í ræktinni, förum alltaf kl 8 á morgnanna í morgunþrek #### hvað það er erfitt en það er þess virði!

Er ótrúlega glöð með að vera búin að fá Önnu aftur heim! Þá hefur maður eitthvað að gera eftir vinnu! Kíktum á djammið um helgina, samt bara edrú sko... Það var bara ótrúlega gaman, geðveikt flott núna uppi í Kaffi Ak, sátum þar í einhverjum sófum í sér herbergi og drukkum Ananassafa hristan í klaka hehehhe....;) og hlógum eins og ég veit ekki hvað;)

Er líka orðin ótrúlega spennt fyrir Jamaica, keypti mér um daginn einhverja bók um Jamaica heheh, maður verður nú að fræðast um staðinn áður en maður fer... OMG myndirnar eru svo flottar, snjóhvítar strendur og alveg tær sjór mmmmmmmmmmm...... get ekki beðið eftir að fara með Írisi minni ;)

En já ætli þetta sé ekki gott í bili

ákvað bara að láta vita að ég ´sé enn á lífi!! ;)

Kollan

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

17.07.2007 14:26:31 / kolbrún

Er að deyja úr spenningi!!!!!!!

Já þá er það komið á hreint að ég og Íris mín ætlum í smá frí 14. febrúar á næsta ári.....

Hvert haldiði að við séum að fara???????????

Kannski bara JAMAICA!!! Pöntuðum ferðina á föstudaginn síðasta og við erum gjörsamlega að farast úr spenningi, það er svo ógeðslega flott þarna..... og HÓTELIÐ omg!!! En Ómar hennar Írisa benti okkur svo á, þegar við töluðum ekki um annað en hvað þetta væri geðveikt, að það væri nú alveg heilir 7 mánuðir í þetta hahahah...... En samt gaman að hlakka til einhvers......

 

EN já langaði bara að deila þessu með ykkur!!!!

EN já eitt í viðbót, veit einhver hvað er að gerast á Seyðisfirði um helgina??? er að fara þangað í útiegu með Önnu og kallinum hennar og einverjum vinum hans! Langar einhverjum með?? Held það sé einhver hátíð þarna!

Bless í bili!!

Kolla (Jamaicafari)


» 10 hafa sagt sína skoðun

08.07.2007 16:39:43 / kolbrún

Góðan daginn!!!

Hvað segiði??? Á ég að blogga??

Allt flott að frétta af mér! Gengur rosalega vel í vinnunni, held það sé ekki hægt að hugsa sér betri yfirmenn!

En já hún Kata mín átti afmæli á föstudaginn og hélt smá grillveislu á krossum! Svo var náttlega djamm um kvöldið! Mjög gaman á barnum! Enduðum á rúntinum með Dessa að njósna um ákveðna aðila... En ja mjög gaman þetta kvöld, ég og Kata enduðum svo djammið upp í rumi með popp að bíða eftir þessum agalegu tónleikum sem byrjuðu kl 7, þeir voru svona agalega góðir að við rotuðumst báðar kl7.03

Vöknuðum svona eldhressar eða þannig um hálf 12 drösluðumst framúr, náðum í bílinn hennar kötu og keyptum okkur shake sem er náttlega það besta við þynnku, gerðum ek mikið meira þann daginn nema að grilla okkur pylsur, liggja í sófanum, leggja okkur og í mat hjá afa!

En já er alveg gjörsamlega að detta úr æfingu við að blogga!

Var svona að detta í hug að fara kannski á djammið í rvk um mánaðarmótin næstu, langar einhverjum með mér????

 

Well

LATER

KOLLAN 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10
Pússl úr myndunum mínum;)
Skemmtun!
Minningar um ömmu Öllu